ADVANCED DRIVER ASSISTANCE SYSTEMS (ADAS)

Bíll ekur frá svifbitabrú

AKSTURSAÐSTOÐARSTILLING

Búin ákeyrsluviðvörun, akreinastýringu, hraðakstursviðvörun og viðvörun fyrir breyttan hámarkshraða.

Nútímalegt JDX-stýri
Nútímalegt JDX-stýri

AKSTURSBÚNAÐUR

InControl inniheldur akstursaðstoðarbúnað, bæði staðalbúnað og aukabúnað, sem gerir þér kleift að njóta þíns Jaguar til fulls og tryggir mesta mögulega öryggi í akstri hvert sem haldið skal. Hafðu samband við næsta söluaðila til að fá upplýsingar um hvaða aukabúnaður hentar þér.

Myndskýringar af neyðarhemlunartækni

NEYÐARHEMLUN

Neyðarhemlun getur gagnast við að koma í veg fyrir árekstra við önnur ökutæki, gangandi vegfarendur eða hjólreiðafólk. Hún birtir viðvörun vegna yfirvofandi áreksturs og beitir hemlunum sjálfkrafa ef ökumaðurinn bregst ekki við.
Akreinastýringarkerfi Jaguar

AKREINASTÝRING

Akreinastýringin greinir þegar bíllinn reikar yfir á næstu akrein og snýr stýrinu í rétta átt til að beina þér og bílnum mjúklega til baka.
BLINDSVÆÐISHJÁLP

BLINDSVÆÐISHJÁLP

Blindsvæðishjálp2 auðveldar þér að skipta um akrein á öruggan hátt og kveikir á litlu viðvörunarljósi á hliðarspeglinum ef annað ökutæki greinist á blindsvæðinu. Stýrisleiðrétting gerir þér viðvart til að þú getir beint bílnum í átt frá hættunni.
Tækni umferðaskiltagreiningar

UMFERÐARSKILTAGREINING MEÐ SJÁLFVIRKRI HRAÐATAKMÖRKUN

Birtir skilti fyrir hámarkshraða og bann við framúrakstri skýrt á mælaborðinu eða sjónlínuskjánum sem í boði er sem aukabúnaður. Þegar kveikt er á sjálfvirku hraðatakmörkuninni notar hún umferðarskiltagreiningu3 til að stjórna hraða bílsins.
Myndskýring af akstursskilyrðum bíls

ÖKUMANNSSKYNJARI

Ökumannsskynjarinn greinir hreyfingar stýris, hemla og inngjafarfótstigs til að ákvarða hvort þig er farið að syfja og lætur þig vita þegar þú ættir að taka þér hlé frá akstri.
Myndskýring af árekstraröryggi að aftan

ÁREKSTRARÖRYGGI AÐ AFTAN

Árekstraröryggi að aftan getur greint hvort ökutæki sem nálgast að aftan hægir ekki á sér og skapar hættu á árekstri. Kerfið reynir síðan að fá viðkomandi ökumann til að hemla með því að blikka hættuljósunum.

BÍLASTÆÐISBÚNAÐUR

Auðveldar þér að aka Jaguar til í þröngum bílastæðum innanbæjar. Hafðu samband við næsta söluaðila til að fá upplýsingar um hvaða aukabúnaður hentar þér.

Bílastæðaskynjarar að framan og aftan

BÍLASTÆÐAKERFI AÐ FRAMAN OG AFTAN

Auðveldar þér að leggja í stæði. Þegar sett er í bakkgír eða kveikt er handvirkt á kerfinu kviknar á skynjurum á fram- og afturstuðurum. Á meðan bílnum er lagt eru birtar upplýsingar á snertiskjánum og hljóðmerki segja til um hversu nærri hindranir eru.
Myndskýring af umferðarskynjara að aftan

UMFERÐARSKYNJARI AÐ AFTAN

Umferðarskynjari að aftan varar ökumann við bílum, gangandi vegfarendum eða öðrum hættum báðum megin við bílinn. Kemur sér sérstaklega vel þegar bakkað er út úr stæði.
Myndskýringar af útgönguskynjara

ÚTGÖNGUSKYNJARI

Útgönguskynjari auðveldar farþegum að gæta öryggis þegar þeir fara út úr bílnum með því að birta upplýsta viðvörun í hurðinni ef hætta greinist, svo sem ökutæki eða hjólreiðafólk sem fer hjá.

SETTU SAMAN ÞINN EIGIN BÍL

Notaðu hönnunarsvæðið til að hanna þinn Jaguar.

JAGUAR F-PACE

JAGUAR F-PACE

Hagkvæmur og skilvirkur lúxussportjeppi.
JAGUAR E-PACE

JAGUAR E-PACE

Í þessum fyrsta fyrirferðalitla SUV-bíl frá Jaguar sameinast fallegt útlit, lipurð og kraftmiklir aksturseiginleikar.
JAGUAR I-PACE

JAGUAR I-PACE

Við kynnum fyrsta afkastamikla sportbílinn frá Jaguar sem gengur eingöngu fyrir rafmagni.

*Ef ökutækið þitt þarf að vera í flutningsstillingu eða þjónustustillingu í meira en 10 klukkustundir, vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver til að biðja um aðstoð.


1Mikilvægt: Bílar á GSR II-markaðssvæðum og/eða NCAP-markaðssvæðum eru stilltir aftur á háa stillingu í hvert skipti sem drepið er á þeim. Á öðrum markaðssvæðum en GSR II og/eða NCAP helst valin akstursaðstoðarstilling virk í minni bílsins og breytist ekki þegar svissað er af. Stillingar sem notandi velur í sérsniðinni stillingu eru alltaf vistaðar í bílnum, óháð markaðssvæðum. Almenna GSRII-öryggisreglugerðin er öryggislöggjöf sem öðlaðist gildi fyrir nýjar gerðir bíla árið 2022 og mun gilda um gerðir sem þegar hafa verið settar á markað árið 2024
2Eiginleikar InControl, valmöguleikar og framboð þeirra eru markaðsháð - hafðu samband við söluaðilann þinn til að fá staðbundinn markaðsaðgang og heildarskilmála. Ákveðnir eiginleikar krefjast viðeigandi SIM-korts með viðeigandi gagnasamningi sem mun krefjast frekari áskriftar eftir upphafstímann sem söluaðili þinn ráðleggur. Ekki er hægt að tryggja farsímatengingu á öllum stöðum. Upplýsingar og myndir sem birtar eru í tengslum við InControl tæknina, þ.mt skjáir eða valmyndir, eru háðar hugbúnaðaruppfærslum, útgáfustýringu og öðrum kerfisbreytingum eftir valkostum. Skilmálar og skilyrði í heild sinni má finna hér.
3Krefst InControl reiknings. Til að halda áfram að nota viðeigandi eiginleika eftir upphaflega áskriftartímabilið þarftu að endurnýja áskriftina þína og greiða viðeigandi endurnýjunargjöld.
4Fer eftir nettengingu.
5InControl Remote, Secure Tracker eða Secure Tracker Pro áskrift og InControl krefst InControl reiknings. Það þarf að virkja Secure Tracker og Secure Tracker Pro þjónusturnar og ökutækið verður að vera á svæði með nettengingu. Til að halda áfram að nota viðeigandi eiginleika eftir upphaflega áskriftartímabilið þarftu að endurnýja áskriftina þína og greiða viðeigandi endurnýjunargjöld.


†Frekari upplýsingar er hægt að nálgast með því að sækja og nota iGuide-forritið.

Sækja iGuide fyrir Apple

Sækja iGuide fyrir Android

Aukabúnaður og framboð hans geta verið háð tæknilýsingu bíls (gerð og aflrás) og verið misjöfn eftir markaðssvæðum eða kunna að krefjast uppsetningar á öðrum búnaði. Hafðu samband við söluaðila til að fá nánari upplýsingar eða útfærðu bílinn þinn á netinu.


Ökumenn ættu einungis að nota búnað í innanrými bílsins þegar það er öruggt. Ökumenn þurfa að tryggja að þeir hafi fulla stjórn á bílnum öllum stundum.

Aðeins samhæfðir snjallsímar.