AKSTURSSTILLINGAR TENGILTVINNBÍLS

AKSTURSSTILLINGAR TENGILTVINNBÍLS

AKSTURSSTILLINGAR RAFBÍLS (TENGILTVINNBÍLS)

Kynntu þér stillingarnar sem gera þér kleift að velja bestu leiðina.

HYBRID-STILLING

HYBRID-STILLING

Sjálfgefin akstursstilling setur rafmagn sjálfkrafa í forgang nema þú þurfir aukaafl eða ef bíllinn er ekki hlaðinn.
EV-STILLING (RAFBÍLL)

EV-STILLING (RAFBÍLL)

Hægt er að velja EV-stillingu með því að ýta á hnapp á stjórnborðinu til að hámarka tímann sem rafmagn er notað. Kerfið tengir aðeins vélina ef þörf er fyrir hámarksafl.

SPARNEYTNI HÁMÖRKUÐ

Í sjálfgefinni akstursstillingu (hybrid-stilling) getur þú hámarkað sparneytni eða fullnýtt hleðslu rafhlöðunnar með því að nota annan hvorn af tveimur hleðslustjórnunareiginleikum:

SPARNAÐARSTILLING

SPARNAÐARSTILLING

Með því að velja hana handvirkt á snertiskjá bílsins kemur sparnaðarstillingin SAVE í veg fyrir að hleðsla rafhlöðunnar falli niður fyrir þá hleðslu sem hefur verið valin. Þetta gerir þér kleift að nýta þér hljóðlátan og útblásturslausan akstur seinna meir í yfirstandandi ferð.
PEO-EIGINLEIKI (FORSTILLT HÁMÖRKUN ORKUNÝTINGAR)

PEO-EIGINLEIKI (FORSTILLT HÁMÖRKUN ORKUNÝTINGAR)

Þegar áfangastaður er sleginn inn í leiðsögukerfið er sjálfkrafa kveikt á PEO-eiginleika bílsins. PEO-eiginleikinn notar landfræðileg gögn til að spá fyrir um veginn fram undan og skipta á hugvitssamlegan máta á milli rafmótorsins og bensínvélarinnar til að hámarka sparneytni. Þetta lágmarkar líka útblástur í innanbæjarakstri.

FREKARI AÐSTOÐ

HVERNIG Á AÐ HLAÐA

HVERNIG Á AÐ HLAÐA

Einföld skref til að hlaða bílinn þinn heima eða á næsta áfangastað.
UPPSETNING

UPPSETNING

Til að nýta lykileiginleika og -búnað bílsins sem best er fyrsta skrefið að tengjast upplýsinga- og afþreyingarkerfinu og setja upp fjarstýringar í snjallsíma.
HÁMARKAÐU LÍFTÍMA RAFHLÖÐUNNAR

HÁMARKAÐU LÍFTÍMA RAFHLÖÐUNNAR

Fylgdu þessum einföldu ráðum til að halda rafhlöðunni skilvirkri og endingargóðri.